Í gær komu 8 nemendur Framhaldsskólans á Húsavík í heimsókn á Þekkingarsetrið þar sem þeir fengu kynningu á aðstöðu og þjónustu Þekkingarsetursins.
Heimsóknin er liður í samvinnu milli Þekkingarsetursins og Framhaldsskólans. Gera á tilraun með að veita nemum sem munu útskrifast í vor sólarhringsaðgang að aðstöðu Þekkingarsetursins fyrir nema þ.e. lesaðstöðu, hópvinnuaðstöðu, prenturum, ljósritun, netsambandi og öllu því sem til þarf þegar menn stunda nám. Hingað til hefur aðstaðan eingöngu verið opin háskólanemum, nemendum í námsleiðum Þekkingarsetursins og fullorðnum framhaldsskólanemendum.
Aðgangur að þjónustunni er nemendum að kostnaðarlausu. Þeir nemendur sem ekki komust á kynninguna í gær geta kynnt sér aðstöðuna hér eða komið í heimsókn á Þekkingarsetrið og hitt náms- og starfsráðgjafa (Erla Dögg Ásgeirsdóttir, erladogg@hac.is eða 4645104) eða umsjónarmann nemendaaðstöðunnar (Aðalsteinn J. Halldórsson, ajh@hac.is eða 464-5103).
|