Aftur á forsíđu
Fréttir Ţekkingarseturs Ţingeyinga  
Nýtt efni Eldra efni
11.3.2010
Nám og ţjálfun ađ ljúka

Um þessar mundir eru þrjár námsleiðir FA kenndar á vegum ÞÞ.

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum hefur verið kennd frá í október í samstarfi við Framhaldsskólann á Húsavík. Í þeirri námsleið byrjuð 8 nemendur en 5 einstaklingar munu ljúka námi í næstu viku þegar brautskráning fer fram.

Á Húsavík er að auki kenndur Skrifstofuskóli. Sú námsleið var þróuð í Skagafirðinum og hefur gefið mjög góða raun þar. Nemendur sem hafa farið í gegnum námsleiðina hljóta góðan undirbúning og undirstöður fyrir skrifstosfustörf og hafa margir hverjir fengið ný starfstækifæri að námi loknu t.d. sem ritarar eða starfsmenn í afgreiðslu hjá opinberum aðilum eins og sveitarfélögum og ríkisstofnunum en einnig hjá aðilum í einkageiranum.

Á Þórshöfn hefur verið mikil vakning í símenntun frá því að Menntasetrið opnaði sl. haust og heyrir til undantekninga ef námskeið falla niður í Langanesbyggð. Þar er nú kennd námsleiðin Fjölvirkjar. Sú leið var þróuð á Akureyri fyrir Sandblástur og málmhúðun og Slippinn. Leiðin er löguð að þörfum starfsmanna og fyrirtækja í iðnaði, þjónustu og framleiðslu. Þess má geta að hún hefur áður verið kennd hjá Fjallalambi á Kópaskeri og að aldrei hefur tekist að koma henni á hér á Húsavík.

Átta nemendur stunda nám í skrifstofuskólanum - sjö konur og einn ungur maður. Sömuleiðis stunda átta nemendur nám í Fjölvirkjanum á Þórshöfn er þar er kynjaskiptingin örlítð jafnari með fimm konur og þrjá karla.




 
Starfssvæði



 English version

 


Námsvísir haustönn 2010


Atvinnuleitendur 

Menntatorg

 

Þekkingarnet Þingeyinga • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: hac@hac.is