| Um stofnunina |
 |
|
Þekkingarnet Þingeyinga er símenntunar-, háskólaþjónustu- og rannsóknastofnun sem starfar á grunni tveggja stofnana er sameinaðar voru árið 2006. Um er að ræða símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga annars vegar og háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfaði einnig undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga fram að sameiningunni. Fræðslumiðstöðin hóf starfsemi árið 1999 og sinnti fullorðinsfræðslu og símenntunarstarfi í héraðinu en Þekkingarsetrið var stofnað árið 2003 samhliða Náttúrustofu Norðausturlands, sem starfar innan setursins. Starfssvæði Þekkingarnetsins er Þingeyjarsýslur en aðsetur þess er á Húsavík. Þekkingarnet Þingeyinga býður upp á námskeiðahald, hefur milligöngu um námsleiðir og námsframboð fyrir fólk og vinnustaði og rekur háskólanámssetur með þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir háskólanema á svæðinu. Einnig er stofnunin miðstöð rannsókna og hýsir til lengri og skemmri tíma fólk, stofnanir og fyrirtæki sem stunda rannsóknir í héraðinu.
|
|
|