Aftur á forsíđu
Háskólanám  

     

Þekkingarnet Þingeyinga starfrækir háskólanámssetur að Hafnarstétt 3 á Húsavík. Þetta setur er kallað í heild "Þekkingarsetrið á Húsavík" og er þar á vegum Þekkingarnets Þingeyinga kennslustofa með fjarfundabúnaði, fullbúin les- og vinnuaðstaða og prent- og ljósritunaraðstaða fyrir háskólanema. Auk þess kaffi- og matstofa og önnur sjálfsögð sameiginleg aðstaða.  Þekkingarnetið er tengt sk. FS-neti, sem er háhraðanet framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðva. Þráðlaust netsamband er í lesrýminu og kennslustofunni sem gert er ráð fyrir að háskólanemar hagnýti sér eftir þörfum við vinnu sína innan Þekkingarsetursins.  Með tilkomu háskólanámssetursins stórbötnuðu möguleikar háskólanema sem hafa búsetu á Húsavíkursvæðinu til að stunda nám sitt.  Þekkingarnet Þingeyinga rekur háskólanámssetrið og þjónustar háskólanemana sem nýta sér aðstöðu setursins. 

Á Þórshöfn var opnað á árinu 2009 Menntasetrið á Þórshöfn, en þar er mönnuð starfsstöð Þekkingarnets Þingeyinga.  Menntasetrið er rekið samhliða framhaldsskóladeild Framhaldsskólans á Laugum á Þórshöfn og í nánu samstarfi við skólann.  Langanesbyggð stendur að baki verkefninu og hefur lagt til húsnæði til starfseminnar.  Í Menntasetrinu á Þórshöfn býður Þekkingarnet Þingeyinga fjarfundabúnaði til kennslu, náms og funda, lesrými fyrir fjarnema og aðstöðu til prófatöku. 

Starfssvæði



 English version

 


Námsvísir haustönn 2010


Atvinnuleitendur 

Menntatorg

 

Þekkingarnet Þingeyinga • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: hac@hac.is