Aftur á forsíðu
Ráðgjöf  

Þekkingarnet Þingeyinga býður upp á ýmis konar ráðgjöf. Bæði er um að ræða ráðgjöf við einstaklinga þ.e. náms- og starfsráðgjöf og ráðgjöf við fyritæki, stofnanir og félagasamtök þ.e. náms- og starfsráðgjöf og Markviss ráðgjöf.

Þekkingarnet Þingeyinga hefur frá árinu 2006 tekið þátt í verkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins sem kallast Þitt val - þín leið - Náms og starfsráðgjöf á vinnustað. Einstaklingar sem og fyrirtæki geta óskað eftir að fá náms- og starfsráðgjafa í heimsókn þar sem verkefnið er kynnt og starfsmönnum gefst síðan kostur á viðtali við ráðgjafa. Ráðgjöfin er bæði einstaklingnum og fyrirtækinu að kostnaðarlausu.

Á Þekkingarsetrinu starfa tveir Markvissráðgjafar. Markviss er ráðgjöf fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök þar sem tekið er á uppbyggingu starfsmanna, stefnumótun og fleiru sem viðkemur innra starfi, endurmenntun starfsmanna og starfsþróun þeirra.

 

Starfssvæði



 English version

 


Námsvísir haustönn 2010


Atvinnuleitendur 

Menntatorg

 

Þekkingarnet Þingeyinga • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: hac@hac.is