Ævintýrakortið komið í dreifingu

krakkarÞekkingarnet Þingeyinga hefur nú gefið út skemmtilegt afþreyingarkort fyrir alla fjölskylduna en það heitir Ævintýrakort barnanna – Bakkafjörður, Langanes og Þistilfjörður. Kortið er uppfullt af fróðleik um dýr, plöntur, skeljar, fjörur, vita og áhugaverða staði og miðar að því að mest alla afþreyingu sé hægt að finna í náttúrunni á svæðinu. Aðalatriðið er síðan að börnin taki þátt í Garpakeppninni, þar eru garpastig tengd við þau atriði sem finna má í máli og myndum í kortinu t.d. fást garpastig fyrir að vaða berfættur í sjónum, fyrir að finna og þekkja vallhumal, syngja fyrir selina, þekkja dýraskít, tína rusl og fullt af stigum fyrir að finna flöskuskeyti. Þegar ákafur keppandi hefur náð 30 garpastigum þá fæst viðurkenningarskjal hjá helstu ferðaþjónustuaðilum sem staðfestir að viðkomandi sé Ævintýragarpur. Mikil áhersla er lögð á það að bera virðingu fyrir náttúrunni, skilja ekki eftir rusl og hrófla ekki við dýralífi eða taka fuglaegg. Ævintýrakortið hafði vinnuheitið Litlir landkönnuðir og er hugmynd sem rannsóknarsvið ÞÞ sendi inn til Nýsköpunarsjóðs námsmanna fyrir sumarið 2013. Þar fékkst styrkur til að vinna upplýsingavinnu í kortið og var Bryndís Þórðardóttir háskólanemi af svæðinu fengin í verkið. Í haust styrkti Vaxtasamningur Norðausturlands áframhaldandi vinnu við verkefnið til að hægt væri að framleiða kortið. Allar þær fínu teikningar sem tilheyra kortinu gerði Margrét Brá Jónassóttir, 16 ára listamaður. Vonast er til að þetta hafi hvetjandi áhrif á alla fjölskylduna til útivistar og semveru úti í náttúrunni. Kortið má kaupa hjá flestum ferðaþjónustuaðilum á svæðinu.

kort

kort2

Deila þessum póst