Þekkingarnetið stendur ár hvert fyrir rannsóknaverkefnum sem unnin eru á sumrin í samstarfi við háskólanema. Verkefnin eru ýmist að frumkvæði stofnunarinnar, og tengjast þá rannsóknum sem verið er að vinna að, eða verkefni sem nemendur sjálfir hafa frumkvæði að. Algengt er að háskólanemar úr heimahéraði sjá tækifæri í því að kynnast störfum við rannsóknir með þessum hætti, ásamt því að geta dvalið á heimaslóð yfir sumarið.
Sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa til margra ára stutt við verkefni af þessu tagi með hlutdeild í fjármögnun launakostnaðar fyrir nemendurna.
Við hvetjum áhugasama háskólanema til að hafa samband við Þekkingarnetið fyrir 1. mars. Sérstaklega er vakin athygli á því að háskólanemar geta haft starfsaðstöðu víða á starfssvæðinu við verkefni af þessu tagi, m.a. í Menntasetrinu á Þórshöfn og Þekkingarsetrinu Mikley í Mývatnssveit þar sem heilsársstarfsmenn ÞÞ starfa, eða á öðrum stöðum þar sem Þekkingarnetið starfar s.s. á Raufarhöfn, Bakkafirði, Kópaskeri eða á Laugum. Einnig skal bent á að til greina kemur að vinna í hlutastarfi eða hluta sumars.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Helenu og/eða Lilju á netföngin helena@hac.is and lilja@hac.is eða í síma 464 5100.