Þriðjudaginn 20. nóvember kl. 18:00 mun Eyþór Eðvarðsson mæta til okkar til að fjalla um álag, streitu og kulunun. Eyþór er með M.A. í vinnusálfræði og er stjórnendaþjálfari og ráðggjafi hjá Þekkingarmiðlun.
Ókeypis er á námskeiðið í boði Þekkingarnets Þingeyinga og stéttarfélagana í Þingeyjarsýslum. Námskeiðið hefst kl. 18:00 og verður haldið í sal Framsýnar.
Hér að neðan má fræðast um hvað Eyþór mun fara yfir.
Streita er frábært fyrirbæri og einkenni dagslegs lífs, öll upplifum við streitu. Fólk er þó mismunandi vel í stakk búið til að mæta álagi. Sumir ná að halda ró sinni í mjög krefjandi aðstæðum á meðan aðrir fara yfir strikið. Það er líka einstaklingsbundið í hve langan tíma við þolum streitu. Fyrst þegar streituástand er orðið langvarandi og farið upp fyrir streituþol okkar fer það að hafa neikvæð áhrif á frammistöðu okkar og vellíðan.
Einnig verður farið yfir fyrirbærið kulnun. Orðið kulnun vísar til þess þegar slökkt hefur verið á kerti. Einstaklingar sem upplifa kulnun missa orkuna og áhugann, telja sig missa stjórn á hlutunum og finnst þeir ráða illa við aðstæður. Margt hefur áhrif og mikilvægt er að átta sig á því að kulnun er ekki einkamál þess sem verður fyrir því. Samstarfsmenn finna það, árangurinn minnkar og áhrifin geta fundist í starfsandanum. Mikilvægt er að þekkja hvað það er sem þarf að huga að.
Á námskeiðinu greina þátttakendur eigin streituviðbrögð og streituþol. Fyrsta skrefið við að ná tökum á streitu er að þekkja eigin streituviðbrögð og vita hversu mikið álag við þolum. Þeir sem eru ekki meðvitaðir um eigið tilfinningalegt ástand eru ekki líklegir til að geta stjórnað því. Síðan er farið í markvissar aðferðir til að stjórna og meðhöndla streitu og álag.
Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
- Mismunandi einkenni streitu.
- Ástæður streitu og kulnunar
- Tengsl hugsana og hegðunar.
- Hvað er hægt að gera?
Ávinningur:
- Innsýn í eigin streituviðbrögð.
- Aukin færni í að takast á við kulnun, streitu og álag.
- Þekking á leiðum til að auka streituþol.
- Meiri ánægja í starfi og einkalífi.
Komið og kíkið á þetta fróðlega námskeið.