Skyndihjálp 4 klst

25oct08:00Skyndihjálp 4 klst08:00

Nánar um viðburð

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og félagsþjónustu Norðurþings.

Markmið; að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.

Undirstöðuatriði: Streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð: Að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp: Stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.

Leiðbeinendur: Rauði kross Íslands

Staðnámskeið, dagar og tími: Stéttin: 25. október kl 08:00-12:00

Tími

(Miðvikudagur) 08:00

Staðsetning

Húsavík