Fræðsluefni fyrir þá sem starfa við óáþreifanlegan menningararf
Vísbendingar úr greiningarvinnu samstarfsaðila í NICHE (https://www.nicheproject.eu/mapping.php) benda til þess að hugtakið „menningararfur“ hafi breyst talsvert á undanförnum áratugum að hluta til vegna skilgreininga sem UNESCO hefur þróað.
Mikilvægi óáþreifanlegs menningararfs er ekki endilega menningarlega birtingarmyndin sjálf heldur sú gnægð þekkingar og færni sem er miðlað í gegnum hann frá einni kynslóð til annarrar.
Félagslegt og efnahagslegt gildi þessarar þekkingarmiðlunar er mikilvægt fyrir almenning og minnihlutahópa og er jafn mikilvægt fyrir lágtekjulönd og hátekjulönd.
Fjölbreyttar leiðir eru til menntunar fyrir þá sem starfa við óáþreifanlegan menningararf bæði hjá menntastofnunum og hjá einstaklingum eða hópum sem hafa þessa sérþekkingu.
Það eru margar áskoranir og líka tækifæri í starfi með óáþreifanlegan menningararf. Meðvitund fólks um hvað er í boði í nærumhverfi þeirra hefur aukist vegna heimsfaraldursins. Þá eru miklir möguleikar fólgnir í samstarfi og í því að þróa vinnu með óáþreifanlegan menningararf á staðbundnum vettvangi.
NICHE fræðsluefninu er skipt í 10 kafla sem fjalla um eftirfarandi viðfangsefni:
Nafn: | Þróað af: |
Samskipti og þekkingarmiðlun | Internet Web Solutions |
Lykilatriði við verndun óáþreifanlegs menningararfs | Internet Web Solutions |
Þróun sýnar | Nýheimar þekkingarsetur |
Vinna með óáþreifanlegan menningararf- Að þróa og meta hugmyndir | Húsavík Academic Center |
Stafrænt læsi og gagnavernd | Hellenic Open University |
Framkvæmd | Halsingland Education Association |
EntreComp ramminn fyrir óáþreifanlegan menningararf | Institut de Haute Formation aux Politiques Communautaires |
Fjármálamenntun og stjórnunarlæsi | IDP European Consultants |
Samskipti og samstarf með stafrænum miðlum. | Municipality of Pescara |
Að deila þekkingu og jafningjanám | Irish Rural Link |
Efnið er aðgengilegt á NICHE: https://www.nicheproject.eu/trainings.php
Ókeypis námskeið sem byggja á námsefninu verða auglýst í vor.