Hnossgæti að heiman – Matarsmiðja

Nú í vetur fer af stað hjá Þekkingarnetinu námskeiðið Hnossgæti að heiman – Matarsmiðja.

Námskeiðið miðar að því að veita matvælaframleiðendum fræðslu um þróun, fullvinnslu og markaðssetningu afurða í takt við Beint frá býli hugmyndafræðina.  

Meðal þess sem tekið verður fyrir er:  

  •  Hreinlætis- og örverufræði.  
  •  Gæðahandbók  
  •  Næringargildi 
  •  Matvælastofnun 
  •  Hráefnisfræði – Kjöt 
  •  Aukaefni 
  •  Uppskriftir; uppsetning – verklýsingar – framlegðarútreikningar.   
  •  Rekstur og afkoma 
  •  Ostagerð   
  •  Hráefni – fiskur og kjöt 
  •  Hráefni – villtar jurtir  
  •  Framleiðsla á eigin vöru – Einstaklingsvinna í tilraunaeldhúsi. 
  • Styrkir og styrkjamöguleikar  

 

Ýmsir gestafyrirlesarar koma að námskeiðinu og verður hluti þess kennt í fjarkennslu með áherslu á sveigjanleika námsins yfir þátttakendur.  

Unnið er út frá námskránni Matarsmiðja frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. 

Skráning er á www.hac.is 

 

Námið er 80 klukkustundir bóklegt (fyrirlestrar) og verklegt. Kennslan fer fram frá október 2021 – febrúar 2022

Fyrirlestrar verða í fjarkennslu þar sem notast er við fjarfundakerfi sem heitir Zoom, þátttakendur þurfa því að hafa aðgang að tölvu með myndavél og hljóðnema. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl 16:30-18:30 en upptökur verða aðgengilegar eftir kennslu.

Verklegi þátturinn er tvískiptur. Um er að ræða einn dag á ostagerðarnámskeiði og hins vegar þriggja daga lotu í löggildum matvælasmiðjum á svæðinu.

Námskeiðið kostar kr. 36.000 og þátttakendum er bent á að kanna rétt sinn til endurgreiðslu hjá starfsmenntasjóðum. 

Deila þessum póst