Í gær lauk 30 stunda íslenskunámskeiði á Raufarhöfn. Sex áhugasamir nemendur sátu námskeiðið en þeir koma frá Búlgaríu og Rúmeníu. Kennari var Silja Jóhannesdóttir og stunduðu nemendur nám á þremur getustigum; íslensku 1A, 1B og 2A. Boðið var upp á góðar veitingar í síðasta tímanum og fengu nemendur viðurkenningarskjöl að lokum.