Ný heimasíða Þekkingarnetsins opnar!

Þekkingarnet Þingeyinga opnar nú nýja heimasíðu á léni sínu www.hac.is ! Unnið hefur verið að endurnýjun síðunnar síðastliðna mánuði í samstarfi við Arngrím Arnarson hjá Blokkinni. Síðan byggir á svonefndu WordPress vefumsjónarkerfi og er einföld í sniðum en vonandi skýr og upplýsandi fyrir notendur.  Eldri síða Þekkingarnetsins var komin til ára sinna og þarfnaðist uppfærslu bæði efnislega og tæknilega.

Facebook

Ein meginbreytingin með nýrri síðu er sú að hafa góða tengingu yfir á Facebook-síðu Þekkingarnetsins, sem hýsir fregnir, myndir og samskipti um starfsemi stofnunarinnar. Við allar fréttir og upplýsingatexta á nýju heimasíðunni höfum við sett „deilingarhnapp“ og hvetjum lesendur til að nýta hann til að deila efninu okkar.

Facebook-deila

 

Aðrar nýjungar eru helstar þær að framsetning efnis til birtingar hefur verið einfölduð. Þannig er t.d. hægt að nálgast allt útgefið efni stofnunarinnar flokkað eftir árum með einföldum flipum merktu hverju ári.  Sama tilhögun er á framsetningu námskeiðsframboðs hverju sinni.

Við vonum að nýja síðan muni reynast notendum vel!

Starfsfólk Þekkingarnets Þingeyinga

 

 

Deila þessum póst