Þann 28. nóvember næstkomandi fer nýr vefur NVL – Norræna tengslanetsins um nám fullorðinna í loftið. Á vefnum má finna nútímalega og notendavæna kynningu á nýjum skýrslum, fréttum, vísindarannsóknum, greinum, námskeiðum og ráðstefnum á breiðu sviði fullorðinsfræðslu.
Hægt verður að fylgjast með því sem efst er á baugi á Norðurlöndunum og einnig í Evrópu.
Norræna ráðherranefndin kom Norræna tengslanetinu um nám fullorðinna (NVL) á fót 2005. Markmið starfseminnar er að skapa vettvang fyrir mismunandi verkefni og starfsemi, og tengja stefnu og starfendur á sviði fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum. NVL ber að hvetja til samræðna og nýsköpunar og stuðla að auknu samstarfi og afskipti af fullorðinsfræðslu.
Norræna ráðherranefndin hefur falið Vox (Landsskrifstofu um færniþróun í Noregi) að vista alskrifstofu NVL á tímabilinu 2013-2016.
Nánari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóra NVL, Öntru Carlsen í síma: +45 60133750 eða með tölvupósti á antra.carlsen@vox.no
Hægt er að skoða vefinn hér: http://nordvux.net/