Þjónustusamningur Þekkingarnets Þingeyinga og mennta- og menningarmálaráðuneytisins var endurnýjaður í ráðuneytinu í gær. Þórarinn Sólmundarson undirritaði samninginn ásamt Óla Halldórssyni forstöðumanni. Um er að ræða framlengingu til eins árs á meðan unnið er að lengri samningi fyrir komandi ár.