Sár og sárameðferð

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN)

Fjallað er um hlutverk húðar, sáragróningarferlið, helstu tegundir sára, mat á sárum, hvetjandi og hamlandi þætti í sáragróningu, umbúðir og eiginleika þeirra. Verkleg kennsla í umbúðalögum/vafningum. Sérstök áhersla verður á sykursýkisfótinn, þrýstingssár og þrýstingssáravarnir.

Leiðbeinandi: Þórgunnur Birgisdóttir Hjúkrunarfræðingur á sérhæfðri sáramóttöku á sjúkrahúsinu á Akureyri. Margra ára reynsla frá mismunandi skurðdeildum á Landspítalanum, Sjúkrahúsinu á Akureyri og frá Stavanger universitet sykehus. Diploma af heilbrigðisvísindasviði HA af stjórnunarlínu og viðbótarnám í sárahúkrun frá Høgskolen i sørøst-Norge 2016. 

Kennsludagar Tímasetning Staðsetning Verð
18.05.2021
09:00 - 16:00
Húsavík
0

Deila þessum póst