Viljayfirlýsing um samstarf á milli Vatnajökulsþjóðgarðs, Þekkingarnets Þingeyinga og Skútustaðahrepps

11. mars undirrituðu Vatnajökulsþjóðgarður, Þekkingarnet Þingeyinga og Skútustaðahreppur viljayfirlýsingu um samstarf á sviði þekkingar- og nýsköpunartækifæra.  Samstarfið miðar að því að allir aðilar nálgist tækifærin með opnum huga þar sem hver leggur af mörkum sína styrkleika, með það að markmiði að samhliða þróun gestastofu VÞJ í Mývatnssveit myndist þar suðupottur hugmynda sem styðji við sjálfbæra þróun svæðisins í víðri merkingu.

Samstarfi Vatnajökulsþjóðgarðs, Þekkingarnets Þingeyinga og Skútustaðahrepps er ætlað að styðja við þverfaglega nálgun þekkingarsköpunar og hagnýtingar hennar í Vatnajökulsþjóðgarði og í hringrásarhagkerfi Mývatnssveitar og nærsveita. Háskólaumhverfið og rannsóknastofnanir verða hvattar til að leggja enn frekari áherslu á rannsóknir á lífríki og náttúru svæðisins, burðarþoli einstakra náttúruperla og þeirra tækifæra sem felast í þróun þjóðgarðstengdrar starfsemi fyrir samfélagið í heild sinni.

Upplýsingar um samstarfið veita Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, Óli Halldórsson, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga og Sveinn Margeirsson sveitarstjóri Skútustaðahrepps.

Óli Halldórsson, forstöðumaður skrifaði undir viljayfirlýsinguna fyrir hönd Þekkingarnets Þingeyinga, Anna Þorsteinsdóttir, þjóðgarðsvörður á norðurhálendi þjóðgarðsins, fyrir hönd þjóðgarðsins og Helgi Héðinsson, oddviti, fyrir hönd Skútustaðahrepps.

Deila þessum póst