EU-NET verkefnafundur í Ungverjalandi

Þekkingarnetið er samstarfsaðili í tveggja ára evrópuverkefni sem kallast: ”EUropean NETworking as a method for further training and exchange of ideas in the lifelong learning sector” „Evrópskt NET sem aðferð til frekari þekkingar og til að skiptast á hugmyndum í símenntunargeiranum“ [EU-NET]. Það eru þau Hilmar og Ingibjörg sem eru verkefnastjórar fyrir hönd Þekkingarnetsins en þau fóru á verkefnafund til Ungverjalands í lok október.

Heildarmarkmið EU-NET verkefnisins er að styðja við tengslanet á evrópskum vettvangi sjálfseignastofnana og samtaka sem starfa í símenntunargeiranum.

Samstarfsaðilar stefna á að hanna, þróa leiðbeiningar um tækifæri í evrópskum samstarfsverkefnum fyrir stofnanir og samtök sem starfa í símenntunargeiranum. Lokaafurð verður handbók með upplýsingum um hvernig sækja á um samstarfsverkefni og hvar eru tækifæri.

Samstarfsaðilar verkefnisins:

Fundacja Alternatywnych Inicjatyw Edukacyjnych, Pólland (Coordinator), www.fundacjaaie.eu

Cooperativa Sociale COOSS MARCHE ONLUS scpa Ítalía, http://www.cooss.it/it/

Félag lýðháskóla í kringum Búdapest, Ungverjaland, http://www.bknsz.hu/

Rightchallenge – Associação Portúgal, www.rightchallenge.org

Þekkingarnet Þingeyinga Ísland, www.hac.is

Deila þessum póst