Efni í umhverfi barna

Nánar um viðburð
Efni í umhverfi barna – námskeið fyrir SSNE Námskeiðið er eingöngu ætlað starfsfólki sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Fyrirkomulag: Kennt í rauntíma í gegnum Zoom. Boðið verður upp á 3 tímasetningar: Fimmtudagurinn 26. okt
Nánar um viðburð
Efni í umhverfi barna – námskeið fyrir SSNE
Námskeiðið er eingöngu ætlað starfsfólki sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Fyrirkomulag: Kennt í rauntíma í gegnum Zoom. Boðið verður upp á 3 tímasetningar:
- Fimmtudagurinn 26. okt kl 10:00-10:45 SKRÁNING HÉR
- Mánudagurinn 30. okt kl 10:00-10:45 SKRÁNING HÉR
- Miðvikudagurinn 8. nóv kl 10:00-10:45 SKRÁNING HÉR
Efni, efnablöndur og hlutir sem innihalda efni eru allt í kringum okkur. Börn eru sérlega viðkvæm fyrir skaðlegum efnum, t.d. hormónaraskandi og ofnæmisvaldandi efnum, og það getur virst óvinnandi vegur að forðast afleiðingar efna á líkama þeirra og þroska. Það er þó margt hægt að gera til að draga verulega úr efnaáreiti á börn og fullorðna. Í þessu námskeiði verður farið yfir hvers vegna það skiptir máli að vera meðvituð um efnin í umhverfinu og horft til lausna og leiða til að auka heilnæmi umhverfis barnanna okkar.
Meðal þeirra spurninga sem verður svarað eru:
- Hvar leynast skaðleg efni í umhverfi barna?
- Hvernig er best að draga úr efnaáreiti á börn?
- Hvað eru efnasnjallir skólar?
- Hvernig eflum við efnalæsi okkar?
Markhópur: Starfsfólk í leik- og grunnskólum
Leiðbeinandi: Leiðbeinandi: Kristín Helga Schiöth er menntuð í heimspeki frá HÍ og alþjóðafræðum frá Háskólanum í Árósum. Hún starfar sem verkefnastjóri á sviði umhverfis- og loftslagsmála hjá SSNE. Hún byggir efni námskeiðsins að miklu leyti á opinberum ráðleggingum Svíþjóðar og Danmerkur til foreldra og skólastofnana.
Frekari upplýsingar varðandi LOFTUM námskeið gefa:
Kristín Björk – 460-5724 – kristin@simey.is
Ingunn Helga – 460-5727 – ingunn@simey.is
Hilmar Valur – 464-5100 – hilmar@hac.is
Tími
(Miðvikudagur) 10:00