Leikskólaliði og stuðningsfulltrúi
Leikskólaliði og stuðningsfulltrúiYear Around Event (2023)

Nánar um viðburð
Námið er kennt á 4 önnum og er aðallega sveigjanlegt fjarnám með einni staðlotu í hverjum áfanga. Um er að ræða tvær námsleiðir sem kenndar eru samhliða, en þær
Nánar um viðburð
Námið er kennt á 4 önnum og er aðallega sveigjanlegt fjarnám með einni staðlotu í hverjum áfanga. Um er að ræða tvær námsleiðir sem kenndar eru samhliða, en þær innihalda sömu áfanga að langmestu leyti. Einn áfangi er kenndur í einu og tekur yfirleitt 4 vikur. Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu
Nám fyrir stuðningsfulltrúa styrkir fagvitund og áhersla er lögð á uppeldisfræði, fötlunarfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Stuðningsfulltrúar koma að umönnun, uppeldi og menntun barna og ungmenna með sérþarfir.
Stuðningsfulltrúar eru m.a. að:
- Aðstoða nemendur við að vera virkir í skólastarfi
- Aðlaga verkefni að getu nemanda
- Styrkja jákvæða hegðun nemenda
- Aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs ef þörf er á
- Styðja nemendur í félagslegum samskiptum
- Aðstoða við þátttöku í tómstundastarf.
Nám fyrir leikskólaliða veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja.
Leikskólaliðar eru m.a að:
- Aðstoða börn við athafnir daglegs lífs og ýta undir sjálfstæði þeirra
- Stuðla að listsköpun, hreyfingu, vettvangsferðum og markvissri málörvun
- Veita börnum með sérþarfir stuðning í daglegu starfi undir leiðsögn sérkennara/deildarstjóra
- Leikskólaliðar starfa samkvæmt aðalnámsskrá við uppeldi, kennslu og umönnun leikskólabarna í samstarfi við aðra starfsmenn leikskólans
Tími
Year Around Event (2023)
Staðsetning
Netnámskeið