Skrifstofuskólinn
01feb17:00Skrifstofuskólinn17:00

Nánar um viðburð
Skrifstofuskólinn er ætlaður fólki á vinnumarkaði sem er 18 ára eða eldra, hefur stutta formlega skólagöngu að baki og vill skapa sér sterkari stöðu á vinnumarkaði með aukinni menntun eða
Nánar um viðburð
Skrifstofuskólinn er ætlaður fólki á vinnumarkaði sem er 18 ára eða eldra, hefur stutta formlega skólagöngu að baki og vill skapa sér sterkari stöðu á vinnumarkaði með aukinni menntun eða er á leiðinni á vinnumarkaðinn að nýju eftir hlé. Tilgangur námsins er að auka sjálfstraust námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla að jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.
Markmið eru að námsmaður:
•efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofu
•auki færni sína til að vinna störf á nútímaskrifstofu
•auki þjónustufærni sína
•nái valdi á tölvufærni sem krafist er við almenn skrifstofustörf
•auki námsfærni sína
Námsgreinar:
•Verslunarreikningur
•Námsdagbók og markmiðasetning
•Þjónusta
•Gagnvirk samskipti
•Handfært bókhald
•Sjálfstraust
•Tölvubókhald
•Námstækni
•Færnimappa og ferilsskrá
•Tölvu- og upplýsingaleikni
•Lokaverkefni
Námsmat:
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar á hac@hac.is eða í síma 464-5100
Námið hefst þegar lágmarksþátttöku er náð.
Verð 63.000 kr.
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Tími
(Fimmtudagur) 17:00