Svæðisleiðsögunám
01nov17:00Svæðisleiðsögunám17:00

Nánar um viðburð
ATH. Hvetjum áhugasöm til að skrá sig hér að neðan, þau
Nánar um viðburð
ATH. Hvetjum áhugasöm til að skrá sig hér að neðan, þau sem eru skráð fá upplýsingar um námið þegar nær dregur. Skráning er ekki skuldbinding en 1. október ætti að liggja fyrir hvort næg þátttaka verður til að hefja nám í nóvember.
Þekkingarnet Þingeyinga mun kenna svæðisleiðsögunám í Þingeyjasýslum í samvinnu við Leiðsöguskóla Íslands sem einnig fer með faglega ábyrgð á náminu. Námið er alls 23 einingar, fjarnám og staðnám í helgarlotum og verður kennt á tveimur önnum. Námið er matshæft inn í Leiðsöguskóla MK. Námið byggir á námskrá fyrir leiðsögunám sem gefin var út af Menntamálaráðuneytinu árið 2004.
Að náminu koma fjölmargir kennara, leiðsögumenn, ferðaþjónustuaðilar og annað fagfólk.
Markmið leiðsögunáms er að búa nemendur undir að fylgja ferðamönnum um Þingeyjasýslu. Leiðsögunám miðar að því að þjálfa færni og hæfni nemenda til þess að standast kröfur ferðaþjónustunnar hverju sinni um áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Þetta nám veitir nemendum sérmenntun á sviði leiðsagnar um Þingeyjasýslu.
Nám í svæðisleiðsögn er víðfermt og fjölbreytt. Fjallað er um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi, íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á svæðinu, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni. Fyrirlesarar og kennarar eru allir sérfróðir um einstaka málaflokka.
Skipulag náms
Námið er 22 einingar og skiptist niður á tvær annir, Áætlað er að kennsla hefjist í nóvember 2023 og ljúki í lok árs 2024. Gert er ráð fyrir 4-5 staðlotum um helgar á tímabilinu víðsvegar um svæðið auk prófalotu í lokin á Húsavík og er skyldumæting í þær lotur. Fyrirlestrar verða á ákveðnum tíma samkvæmt stundaskrá en auk þess verða upptökur aðgengilegar á námsvef. Gert er ráð fyrir að kennslan fari fram utan hefðbundins dagvinnuvinnutíma þ.e. seinni part dags eða á kvöldin u.þ.b. 2 sinnum í viku. Í gegnum námsvef verður einnig verkefnavinna og próf. Námið fer fram á íslensku fyrir utan að nemendur geta valið ensku eða annað tungumál ef næg þátttaka fæst og fá þá þjálfun í leiðsögn á því máli.
Kjarnagreinar | ||
Atvinnuvegir | ATV101 | 1 ein |
Bókmenntir og listir | BOL102 | 2 ein |
Dýralíf | DÝR101 | 1 ein |
Ferðaþjónusta | FEÞ101 | 1 ein |
Gróður – náttúruvernd | GRN101 | 1 ein |
Íslenska samfélagið | ÍSA101 | 1 ein |
Jarðfræði | JAR102 | 2 ein |
Leiðsögutækni – samskipti | LES102 | 2 ein |
Íslandssaga | SAG101 | 1 ein |
Skyndihjálp | SKY101 | 1 ein |
Tungumálanotkun I | TMN102/112 | 2 ein |
Vettvangsnám | VEV102 | 2 ein |
Samtals í kjarna | 17 ein | |
Almenn leiðsögn | ||
Svæðalýsingar | SVÆ135 | 5 ein |
Samtals einingar | 22 |
Námsmat
Námsmatið byggir á skriflegum og/eða munnlegum verkefnum og prófum. Nemendur þurfa að fá a.m.k. sjö af tíu í einkunn í öllum greinum. Gert er ráð fyrir að nemendur mæti í allar staðlotur.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 21 árs við upphaf námsins. Þeir skulu hafa stúdentspróf eða sambærilegt nám, ásamt því að hafa gott vald á einu erlendu tungumáli og íslensku. Þeir nemendur sem velja ensku eða annað erlent tungumál þurfa að standast munnlegt inntökupróf áður en námið hefst.
Vakin er sérstök athygli á því að þeir sem áður hafa lokið hluta af Svæðisleiðsögunámi geta setið staka áfanga og lokið náminu. Starfandi leiðsögumönnum sem hafa hug á endurmenntun býðst einnig að sitja staka áfanga.
Kostnaður
Svæðisleiðsögunámið kostar kr. 365.000 eða kr. 182.500 á önn. Kostnaður vegna vettvangsferða í staðlotum er innifalinn en nemendur greiða sjálfir fyrir ferðir, gistingu og mat í staðlotum.
Væntanlegum þátttakendum er bent á að kanna rétt sinn til endurgreiðslu hjá starfsmenntasjóðum.
Í hnotskurn
Kennarar: Ýmsir
Umsjónarmaður: Ingibjörg Benediktsdóttir.
Tími: 2023 – 2024.
Fjöldi eininga: 23.
Fjöldi kennslustunda: 276.
Staður: Þekkingarnet Þingeyinga – fjarnám og helgarlotur.
Verð: 365.000 eða kr. 182.500 á önn.
Nánari upplýsingar: sími 464-5100.
Tími
(Miðvikudagur) 17:00