Eins og við höfum áður sagt frá þá hafa sumarstarfsmenn þeir sem hafa verið að störfum á hjá okkur á Þekkingarnetinu eða í okkar umsjón í sumar verið í önnum. Afrakstur verkefnanna er að birtast okkur í ýmsu formi þessa síðustu daga áður en þeir halda hver í sína áttina til áframhaldandi náms. Í fyrsta skipti verður tveimur verkefnum skilað í formið hlaðvarps í stað hefðbundinna skýrsluskila.
Annað þeirra er afrakstur viðtalsrannsóknar sem snýr að því að afla upplýsinga um lífið í Flatey á Skjálfanda áður en íbúar tóku ákvörðun um að yfirgefa eyjuna. Bjargey Ingólfsdóttir, nemi í tölvunarfræði við Stockhom University, var ráðin af Þingeyjarsveit til að vinna verkefnið í samstarfi við Þekkingarnetið og Urðarbrunn. Bjargey nýtti sumarið vel í að afla upplýsinga um Flatey og tók viðtöl við sex af fyrrum íbúum eyjarinnar. Þeir voru systurnar Freyja Sigurpálsdóttir og Guðrún Sigurpálsdóttir úr Baldurshaga, systkinin Elsa Hólmgeirsdóttir og Guðmundur Hólmgeirsson frá Grund, Hallur Hallsson frá Nýja bæ og Hermann Ragnarsson frá Sæbergi. Öll höfðu þau frá mörgu að segja, svo sem bernsku og skólahaldi, atvinnulífi og félagslífi.
Viðtölin verða ekki birt í heild sinni en Bjargey hefur síðustu daga unnið ásamt Páli Hlíðari Svavarssyni að því að klippa þau til í nokkra þætti þar sem hver fjallar um tiltekið þema þar sem endurminningar viðmælendanna sex koma fram.
Kynningu á hlaðvarpinu má nálgast hér og á næstu dögum munu þættirnir verða settir inn á rásina.