Kátir íslenskunemar á Raufarhöfn

20161102_191437Í gær lauk 30 stunda íslenskunámskeiði á Raufarhöfn. Sex áhugasamir nemendur sátu námskeiðið en þeir koma frá Búlgaríu og Rúmeníu. Kennari var Silja Jóhannesdóttir og stunduðu nemendur nám á þremur getustigum; íslensku 1A, 1B og 2A.  Boðið var upp á góðar veitingar í síðasta tímanum og fengu nemendur viðurkenningarskjöl að lokum.20161102_191542 20161102_191533 20161102_191525

Deila þessum póst