Það var skemmtilegt andrúmsloft á kaffihúsinu Hvalbak á Húsavík þegar Katrín Jakobsdóttir ræddi um glæpasögur við fjölda gesta. Katrín skrifaði meistararitgerð sína í íslensku við Háskóla Íslands um íslenskar glæpasögur. Hún flutti líflegan fyrirlestur um þetta skemmtilega efni og ræddi svo við gesti, sem margir hverjir voru vel lesnir í glæpasögum. Vel var mætt og bar helstu söguhetjur glæpasagna á góma meðal gestanna.