Ráðherra fundar með þekkingarsetrunum

Ráðherra ávarpaði ársfund SÞS, sem haldinn var með Zoom-fjarfundaformi.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra átti nýverið fund með fulltrúum þekkingarsetra. Um var að ræða ársfund Samtaka þekkingarsetra þar sem ráðherra var sérstakur gestur. Fundurinn var haldinn í fjarfundaformi með þátttöku allra þekkingarsetra innan samtakanna. Lilja ávarpaði í upphafi fundar og ræddi m.a. um mikilvægi sterkra innviða fyrir menntaþjónustu og rannsóknir í byggðum landsins. Óli Halldórsson forstöðumaður Þekkingarnetsins sá um almenna kynningu þekkingarsetranna fyrir hönd samtakanna en forstöðumenn hverrar stofnunar kynntu svo verkefni og áherslur hverrar stofnunar. Fundarmenn áttu svo gagnlegar samræður við ráðherra um málefni þekkingarsetranna, m.a. um framtíðarhlutverk þeirra sem innviðir menntakerfis byggða landsins og aukin tengsl við atvinnulífið og nýsköpunarstarf.

Deila þessum póst