Þessa dagana er mikið um að vera á Þekkingarsetrinu á Húsavík. Alþjóðlegur hópur háskólanema í jarðvísindum situr í fyrirlestrum í kennslustofu. Páll Einarsson prófessor við Háskóla Íslands er með hópnum ásamt erlendum kennurum og fara þeir fyrir hópnum í fræðsluferð um Norðausturland á milli þess sem fyrirlestrar og vinna fer fer fram innanhúss.
Á sama tíma eru einnig nokkrir erlendir vísindamenn og háskólanemar á vegum Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík á setrinu við hvalarannsóknir. Háskólanemar sem starfa í sumarverkefnum hjá Þekkingarnetinu eru svo 6 talsins þetta sumarið í vinnu.
Það er því nóg við að vera í rannsóknastarfi þetta sumarið á Hafnarstéttinni og alþjóðlegur bragur á vinnustaðnum. Þessi starfsemi fer afar vel saman við hefðbundið fræðslustarf yfir veturinn þar sem þessi ólíku hópar nýta vinnuaðstöðu og þjónustu á ólíkum árstímum.
Það er nóg úrval af skótaui í forstofu Þekkingarsetursins þessa dagana. 🙂