Stafvæðing eykst jafnt og þétt í samfélagi okkar. Víða í Evrópu er staðan sú að ýmis lögboðin opinber þjónusta er eingöngu aðgengileg á netinu. Aukið mikilvægi stafrænar þjónustu í daglegu lífi verður til þess að nauðsynlegt er að almenningur tileinki sér ákveðna stafræna færni og læsi.
Þekkingarnetið hefur unnið að gerð kennsluefnis fyrir eldri borgara ásamt 5 samstarfsaðilum sínum sem koma frá 5 Evrópulöndum. Í verkefninu felst þróun hæfniþjálfunar á sviði stafrænnar tækni og þróun verkfæra á sama sviði fyrir eldra fólk. Samstarfsverkefninu er einnig ætlað að efla leiðbeinendur í heimabyggð til að styðja við stafræna hæfni eldri borgara.
Á heimasíðu verkefnisins má nálgast fræðsluefni verkefnisins:
Myndbönd:
Vegvísar, skriflegar leiðbeiningar:
Frekari upplýsingar um verkefnið eru aðgengilegar á heimasíðu þess www.digital-communities.eu