Styrkir til meistaranema

Fjölmargir háskólanemar nýta sér þjónustu Þekkingarnetsins á hverju ári og sumir hverjir nýta aðstöðuna til ritgerðarskrifa, þá oft í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á svæðinu. Hér er eitt tækifæri sem vert er að skoða. Meiri upplýsingar á http://www.samband.is/verkefnin/stjornsysla-sveitarfelaga/styrkir-til-meistaranema/

Á árinu 2015 samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að veita árlega á árunum 2016-18 styrki til allt að þriggja meistaranema við viðurkennda háskóla. Samþykkt þessi er gerð í tilefni af 70 ára afmæli sambandsins, sem stofnað var í júní árið 1945.

Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að verkefnin sem sótt er um styrk til hafi skírskotun til markmiða eða aðgerða í stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Á hverju ári er gert ráð fyrir að sambandið tilgreini þá stefnumörkunarþætti, sem leggja ber áherslu á að fjallað verði um í þeim lokaverkefnum sem verða styrkt. Þannig getur sambandið forgangsraðað þeim málum, sem það kallar eftir umfjöllun um, í lokaverkefnum þeirra meistaranema sem fá samþykkta styrki.

Deila þessum póst