Þekkingarnetið leitar nú að starfsmanni í ræstingar og húsumsjón í Þekkingarsetrinu á Hafnarstétt 3 á Húsavík. Um er að ræða hlutastarf sem unnið er að mestu utan dagvinnutíma 2-3x í viku.
Reynsla af ræstingum eða tengdum störfum kostur. Viðkomandi þyrfti að geta byrjað strax.
Umsækjendur hafi samband við forstöðumann (Óla Halldórsson) í netfanginu oli@hac.is eða símum 464 5100 og 868 7600.