Útskrift leikskólaliða og stuðningsfulltrúa

Á föstudag 29. apríl útskrifuðum við 18 nemendur af leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú. Nemendahópurinn hefur nú lokið tveggja ára námi en brautin er skipulögð sem nám með vinnu og er námið svo kölluð brú sem er sérstaklega ætluð fólki með langa starfsreynslu og margra ára námskeiðsferil að baki. Námið hófst haustið 2020 og fengu nemendur og skipuleggjendur að finna fyrir heimsfaraldri. Það kom fyrir að lotur voru rafrænar og kennarar, nemendur og verkefnastjórar fengu allir Covid. Það hafðist að klára og aldrei þurfti að fella niður tíma og útskrifaðist hópurinn á réttum tíma.

Hópurinn,  sem nú útskrifaðist er mjög ánægður með námið og telur að það muni skila sér í bættri stöðu þeirra hvað varðar aukna þekkingu og færni til að takast á við fjölbreyttari verkefni.

Á myndinni er hópurinn ásamt Þóri Aðalsteinssyni og Anítu Jónsdóttur kennurum og Ingibjörg Benediktsdóttir verkefnastjóri símenntunarsviðs

Við óskum þessum konum innilega til hamingju með áfangann.

Deila þessum póst