Í gærkvöldi fór af stað 6 vikna Zumbanámskeið á Raufarhöfn undir stjórn Jóhönnu Svövu Sigurðardóttur, Zumbakennara.
Frábær þátttaka er á námskeiðinu og meira að segja einn karlmaður. Þetta er í fyrsta skipti sem karlmaður mætir á Zumbanámskeið á vegum Þekkingarnets Þingeyinga og erum við í skýjunum með það. Einnig kom í ljós á þessu námskeiði að aldur er engin afsökun fyrir að mæta ekki á námskeið og dansa. Elsti þátttakandinn á námskeiðinu er 84 ára, eiturhress kona. Hún gaf ekkert eftir og skemmti sér mjög vel.
Flottur hópur sem á eftir að skemmta sér saman næstu 5 vikurnar.