Í lok mánaðarins heldur Þekkingarnetið námskeið sem hefur fengið nafnið „Tögl og tíðir”. Það samanstendur af tveimur þáttum; annars vegar kennslu í hárgreiðslu og hins vegar fræðslu um blæðingar.
Markmið námskeiðsins er að valdefla feður og stuðla að góðum og traustum tengslum þeirra við börnin sín.
Námskeiðið hentar öllum feðrum barna sem þurfa að láta greiða á sér hárið á leik- og grunnskólaaldri, jafnvel þó það sé langt í kynþroskaaldurinn, það er alltaf hægt að geyma fróðleikinn hjá sér og vera vel undirbúinn þegar að honum kemur.
Þátttakendur fá að æfa hárgreiðslur á þar til gerðum „æfingarhausum”.
Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir feður dætra en allir feður barna á leik- og grunnskólaaldri eru velkomnir. Ef til vill eiga einhverjir feður börn af öðrum kynjum með sítt hár sem vilja töff fléttur í hárið, eða hafa það í huga að fræða börnin sín um blæðingar til þess að þeir geti stutt vinkonur sínar í því flókna ferli sem kynþroskinn er.
Vonin er sú að það skapist þægilegt andrúmsloft á námskeiðinu þar sem þátttakendum líður vel, þeir þori að spyrja spurninga og fari frá okkur fullir sjálfstrausts í að setja tögl og ræða um tíðir.
Tutaj má skrá sig á námskeiðið.