Góðar fréttir fyrir alla sköpunarglaða! Fab Lab Húsavík lengir nú opnunartímann á opnum dögum á miðvikudögum um eina klukkustund. Héðan í frá verður smiðjan opin öllum á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00.
Með lengri opnunartíma viljum við gefa enn fleirum tækifæri til að kynnast möguleikum stafrænnar framleiðslu, prófa nýja tækni og koma eigin hugmyndum í framkvæmd.
Hvort sem þú vilt prófa þrívíddarprentun, laserskurð, hanna eitthvað skemmtilegt eða einfaldlega kíkja í heimsókn og sjá hvað er hægt að gera, þá ertu velkomin(n)! Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og starfsfólk smiðjunnar er á staðnum til að aðstoða.
Opnunartímar Fab Lab Húsavík
🔧 Mánudagar kl. 15:00–17:00 – Fyrir vana notendur
Ætlaðir þeim sem hafa áður sótt námskeið í Fab Lab eða þekkja vel til tækjanna og geta unnið sjálfstætt með litla eða enga aðstoð.
💡 Miðvikudagar kl. 15:00–18:00 – Opið fyrir alla!
Allir velkomnir, ungir sem aldnir! Tilvalið tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, fá aðstoð við verkefni eða koma hugmynd í framkvæmd. Engin reynsla nauðsynleg.
🚀 Föstudagar kl. 8:00–9:30 – Nýsköpun fyrir fyrirtæki
Sérstakur tími fyrir fyrirtæki og atvinnulíf sem vilja fá aðstoð við nýsköpun, vöruþróun, hönnun eða lausnir á fjölbreyttum áskorunum. Hér gefst tækifæri til að ræða hugmyndir, skoða möguleika tækninnar og taka fyrstu skrefin í þróun nýrra lausna.
Allir geta skapað!
Fab Lab Húsavík er vettvangur fyrir sköpun, tilraunir og nýsköpun. Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til að nýta sér aðstöðuna, hvort sem um er að ræða lítið verkefni, nýja vöruhugmynd eða þróun á lausn sem gæti orðið að einhverju stærra.
Við hlökkum til að sjá ykkur í smiðjunni!