Síðastliðinn þriðjudag hélt Þekkingarnetið í samvinnu við Rauða Krossinn fjögurra klukkustunda skyndihjálparnámskeið á Stéttinni. Meðal þátttakenda var fjölmennur hópur frá rafverktakafyrirtækinu Víkurraf sem lét miklar annir á mörgum vístöðvum ekki stoppa sig í að viðhalda nauðsynlegri færni í skyndihjálp. Þökkum við þeim og öðrum þátttakendum kærlega fyrir komuna og hvetjum jafnframt fyrirtæki til að hafa frumkvæði að því að senda sitt starfsfólk á skyndihjálparnámskeið því enginn veit hvenær gæti þurft að reyna á þá hæfni. 

Þekkingarnetið býður upp á þann möguleika að panta skyndihjálparnámskeið fyrir vinnustaði og hópa. Það er háð samkomulagi við kennara hverju sinni en reynt er að komast til móts við aðila eins og hægt er . Boðið er bæði upp á 4 klst og 12 klst. námskeið. Hægt er að hafa samband á hac@hac.is lub heidar@hac.is W celu uzyskania dalszych informacji.

Starfsfólk Víkurraf í góðum gír á Stéttinni