Ein af starfsstöðum Þekkingarnetsins, Kistan, er staðsett á Þórshöfn í Langanesbyggð. Þar er aðstaðan til náms og próftöku virkilega góð og starfsfólk Kistunnar veitir hlýja og góða þjónustu, enda er aðstaðan mikið notuð af nemum í fjarnámi. Í Kistunni er jafnframt hægt að leigja skrifborð til að vinna óstaðbundin störf, tímabundna fjarvinnu, taka upp í hljóðveri og þar er meira að segja hægt að fá inni í „Hugvitsdvöl” til að geta unnið tímabundið á skapandi og rólegum stað.

Í þættinum „Um land allt” á Sýn+ er einmitt fjallað um Þórshöfn og viðtal tekið við Heiðrúnu, verkefnastjóra í Kistunni. Þar segir hún frá starfseminni og mikilvægi aðstöðunnar fyrir samfélagið. Þátturinn er sýndur í kvöld, miðvikudag 18. nóvember klukkan 19:20 á Sýn+.

Kistan er atvinnu- og nýsköpunarsetur Langanesbyggðar og afar mikilvægur hlekkur í starfsemi Þekkingarnets Þingeyinga.
Markmið með starfsemi Kistunnar er að skapa samfélag stofnana, fyrirtækja og frumkvöðla undir einu þaki til að styðja við atvinnuþróun og nýsköpun. Kistan er staðsett í Kistufelli sem eitt sinn hýsti Sparisjóð Þórshafnar og nágrennis, og því afar viðeigandi að þar sé lagt inn í hugvitsbankann.