Enginn hægri og vinstri vettlingur, heldur vettlingar sem passa jafnt á hægri og vinstri hönd.
Við ætlum að prjóna einfalda vettlinga með útaukningu fyrir þumal í hlið vettlingsins og við prjónum vettlingana á hringprjóna með aðferðinni Magic Loop.
Magic Loop (töfralykkja) er prjónaaðferð sem gerir þér kleift að prjóna í hring þótt ummálið sé mjög lítið (t.d. sokka, húfur eða ermar) með því að nota langan hringprjón ca 80 til 100 cm með mjúkri snúru) í stað sokkaprjóna.
Ef þú kannt að fitja upp og prjóna slétt og brugðið er tilvalið bæta við sig þekkingu, sitja og hafa það notalegt við kamínuna hjá okkur á Þekkingarsetrinu og prjóna hlýja vettlinga fyrir veturinn.