Ocena umiejętności praktycznych

Hefur þú áhuga á að skoða hvort raunfærnimat sé möguleiki fyrir þig?

Hvað er raunfærnimat?

  • Raunfærnimat er staðfesting og mat á færni einstaklingsins án tillits til þess hvernig eða hvar hennar hefur verið aflað. Markmiðið með raunfærnimati er að viðurkenna þá færni einstaklingsins sem hann býr yfir á ákveðnum tíma, þannig að hann þurfi ekki að sækja nám í því sem hann kann eða öðlist framgang í starfi. Raunfærnimat byggist á því að mögulegt sé að draga fram og lýsa raunfærni sem er fyrir hendi og skilgreina, meta og viðurkenna.
  • Mat á raunfærni er mikil hvatning til náms fyrir einstaklinga á vinnumarkaðanum og gefur þeim tækifæri á að ljúka námi á sínum forsendum.
  • Mat á raunfærni getur verið hvati fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði, í hinum ýmsu starfsgreinum, til að ljúka formlegu námi. Þar með styrkist staða þess, fagstéttanna, fyrirtækjanna og þjóðarinnar almennt hvað varðar þekkingarstig og framþróun.

Raunfærnimatsferlið

  • Kynning á ferlinu
  • Viðtal við náms- og starfsráðgjafa
  • Ferlið hefst þegar kominn er hópur af einstaklingum sem uppfyllir inntökuskilyrði
  • Færniskráning (gerð færnimöppu og sjálfsmat)
  • Matssamtal (fagaðili metur færnina með fjölbreyttum aðferðum)
  • Nánari staðfesting ef þess er þörf
  • Viðurkenning (skírteini eða skráning metinna eininga í Innu)

Hér má sækja frekari upplýsingar um raunfærnimat

Hér má finna upplýsingar um raunfærnimat í iðngreinum