ÞettÞetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Námskeiðslýsing
Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem starfar í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi þar sem samskipti við skjólstæðinga og samstarfsfólk skipta lykilmáli. Farið verður yfir verkfæri til að takast á við erfið samskipti af fagmennsku og öryggi, auk þess sem lögð verður áhersla á ábyrgð hvers og eins í að móta jákvæða vinnustaðamenningu og öflugt teymi.
Markmið námskeiðs
Að loknu námskeiði skulu þátttakendur:
- Þekkja leiðir til að bregðast við krefjandi samskiptum við skjólstæðinga af öryggi og fagmennsku.
- Átta sig betur á lagalegum og faglegum mörkum í samskiptum.
- Geta metið hvenær leita eigi stuðnings hjá samstarfsfólki eða stjórnendum.
- Skilja mikilvægi teymisvinnu í lausn erfiðra mála.
- Þekkja áhrif eigin hegðunar á vinnustaðamenningu og líðan annarra.
- Sýna aukinn skilning og virðingu fyrir fjölbreyttum hlutverkum innan stofnunarinnar.
- Fá verkfæri til að stuðla að jákvæðum samskiptum, trausti og samvinnu.
Przewodnik frá KVAN
Tímasetning: Nóvember, nánar auglýst síðar