HSN – Pierwsza pomoc (4 godziny)

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla. 

Markmið:  

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum. 

Viðfangsefni: 

  • Kynning; hvað er skyndihjálp? 
  • Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar. 
  • Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp. 
  • Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi. 
  • Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall. 

Materiały edukacyjne 

Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi. 

Inntökuskilyrði 

Þátttakendur séu 14 ára eða eldri. Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst. 

Námsmat 

Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi. 

Viðurkenning 

Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu.  

Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. 

Efnisatriði 

Fjögur skref skyndihjálpar 

  • Tryggja öryggi á vettvangi 
  • Meta ástand slasaðra eða sjúkra 
  • Sækja hjálp 
  • Veita skyndihjálp 

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð 

  • Að athuga viðbrögð, opna öndunarveg og athuga öndun 
  • Hjartahnoð og blástursaðferð(endurlífgun) 
  • Sjálfvirkt hjartastuð (notkun AED tækja) 
  • Aðskotahlutur í öndunarvegi 

Skyndihjálp og áverkar 

  • Innvortis- og útvortis blæðingar 
  • Bruni og brunasár, 
  • Áverkar á höfði, hálsi eða baki 

Skyndihjálp og bráð veikindi 

  • Brjóstverkur 
  • Bráðaofnæmi 
  • Heilablóðfall 
  • Flog 
  • Sykursýki 
  • Öndunarerfiðleikar 

Sálrænn stuðningur 

  • Streita í neyðartilfellum 
  • Tilfinningaleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp 
  • Sálrænn stuðningur 

Tímasetning nánar auglýst síðar