Viljayfirlýsing um samstarf á milli Vatnajökulsþjóðgarðs, Þekkingarnets Þingeyinga og Skútustaðahrepps

11. mars undirrituðu Vatnajökulsþjóðgarður, Þekkingarnet Þingeyinga og Skútustaðahreppur viljayfirlýsingu um samstarf á sviði þekkingar- og nýsköpunartækifæra.  Samstarfið miðar að því að allir aðilar nálgist tækifærin með opnum huga þar sem hver leggur af mörkum sína styrkleika, með það að markmiði að samhliða þróun gestastofu VÞJ í Mývatnssveit myndist þar suðupottur hugmynda sem styðji við sjálfbæra þróun svæðisins […]