Þekkingarnetið starfar sem sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá þar sem rekstrarform og markmið starfseminnar eru skilgreind. Fyrsti vísir starfsemi Þekkingarnetisins er frá árinu 1999 þegar Fræðslumiðstöð Þingeyinga var stofnuð, sem síðar rann saman við Þekkingarnetið. Frá þessum tíma hefur starfsemi og skipulagsskrá Þekkingarnetsins breyst töluvert og ný starfssvið og viðfangsefni bæst við.
Þar að auki hefur bakland í héraðinu breyst, m.a. með sameiningum sveitarfélaga og stofnana. Í júnímánuði 2024 var skipulagsskráin uppfærð síðast og staðfest af yfirvöldum samkvæmt lögum um sjálfseignarstofnanir í ágúst 2024.
1.gr.
Þekkingarnet Þingeyinga, kt. 670803-3330, er sjálfseignarstofnun með sérstaka stjórn, stofnuð í samræmi við lög nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Heimili og varnarþing er í Þingeyjarsýslum. Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og er ekki háð neinum öðrum lögaðilum.
2.gr.
Þekkingarnet Þingeyinga starfar á grunni símenntunarmiðstöðvarinnar Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga og háskólanáms- og rannsóknasetursins Þekkingarnets Þingeyinga. Starfsemi sameinaðrar stofnunar undir nafni Þekkingarnets Þingeyinga frá og með árinu 2006 tekur mið af markmiðum, hlutverki og skyldum beggja stofnananna.
Stofnfé Þekkingarnets Þingeyinga var við stofnun kr. 5.000.000. Við sameiningu Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga og Þekkingarnets Þingeyinga dags. 1. janúar 2006 er stofnfé kr. 7.487.575. Þar af eru kr. 5.000.000 frá Þekkingarsetri Þingeyinga en kr. 2.487.575 frá Fræðslumiðstöð Þingeyinga. Óskerðanlegt stofnfé er kr. 650.000. Eigi má fara með eigur stofnunarinnar eða ráðstafa þeim annan hátt en þann er samrýmist markmiðum hennar eða stuðlar að framgangi þeirra.
3.gr.
Markmið Þekkingarnets Þingeyinga eru:
Símenntun
að vera miðstöð símenntunar og fullorðinsfræðslu í Þingeyjarsýslum að efla menntunarmöguleika í Þingeyjarsýslum að bjóða upp á námskeið og námsleiðir tengd atvinnulífi og tómstundum að hafa milligöngu um fjarnámsframboð í héraðinu í samstarfi við skóla á viðkomandi skólastigum að veita námsráðgjöf og stuðning við nema og fólk sem hyggur á nám að vinna með fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum við mótun símenntunarstefnu þeirra og sérsniðinna námsleiða
Rannsóknir og þróun
að vera miðstöð rannsóknastarfs og rannsakenda í Þingeyjarsýslum að hafa frumkvæði að annsóknaverkefnum og rannsóknastarfi í héraðinu að þjóna vísinda- og fræðimönnum, einstaklingum, rannsóknanemum í framhaldsnámi, stofnunum og samtökum í Þingeyjarsýslum að vera leiðandi afl í að byggja upp samstarf þeirra aðila er stunda rannsóknir í héraðinu og stuðla að aukinni starfsemi rannsóknaraðila í héraðinu að taka virkan þátt í að móta öflugt nýsköpunarumhverfi í Þingeyjarsýslum í samstarfi við hagsmunaaðila í héraðinu
að byggja upp samstarf og tengsl hagsmunaaðila innan íslensks nýsköpunarumhverfis
Háskólanám
að starfrækja háskólanámssetur á Húsavík og eftir þörfum víðar í Þingeyjarsýslum með tilheyrandi aðstöðu og búnaði að vinna með háskólum að bættri þjónustu í formi fjarkennslu og staðbundins náms í Þingeyjarsýslum að þróa námsleiðir og/eða námskeið sem byggja á sérstöðu í náttúrufari og/eða menningu í Þingeyjarsýslum í samstarfi við háskóla.
Nýsköpun
að stuðla að samþættingu svæðisbundins fræðslu- og rannsóknastarfs við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf með klasasamstarfi á starfssvæðinu. Að stuðla að eflingu frumkvöðlastarfs og vinna að bættri aðstöðu og aðbúnaði til nýsköpunarstarfs á starfssvæðinu, t.a.m. með uppbyggingu og rekstri frumkvöðlasetra og/eða fablab-smiðja.
Samþætting þekkingarstarfs
Að efla byggð í Þingeyjarsýslum með styrkri símenntun, þjónustu á sviði háskólanáms, rannsóknastarfi og aðstöðu fyrir nýsköpunarstarf. að samþætta rannsóknir, fræðastarf, menntun og þróunarstarf og hagsmuni þeirra aðila sem koma að þessum málaflokkum.
4.gr.
Í stjórn stofnunarinnar sitja fimm, tilnefnd til tveggja ára í senn. Samsetning stjórnar miðast við að hafa fulltrúa meginstarfssviða stofnunarinnar, þ.e. símenntunar, rannsókna, háskólaþjónustu og nýsköpunar auk svæðisbundins skólastarfs og nærsamfélagsins. Til að ná þessu markmiði verði stefnt að því að stjórnarmenn komi frá eftirfarandi aðilum; einn aðalmaður í stjórn og annar til vara:
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eða samtök atvinnurekenda á Norðurlandi eystra (símenntun)
Háskóli Íslands eða Háskólinn á Akureyri (rannsóknir og háskólaþjónusta)
Stofnun, fyrirtæki eða einstaklingur starfandi í nýsköpun á landsvísu (nýsköpun)
Framhaldsskólinn á Húsavík eða Framhaldsskólinn á Laugum (svæðisbundnir skólar)
Norðurþing, Þingeyjarsveit, Langanesbyggð eða Tjörneshreppur (nærsamfélagið)
Grunnskólar í Þingeyjarsýslum tilnefni á hverjum tíma einn áheyrnarfulltrúa sem hafi rétt til að sitja stjórnarfundi með tillögurétt en án atkvæðisréttar.
Stjórn ber ábyrgð á því að tilnefningar berist fyrir aðalfund. Tilhögun tilnefninga er með þeim hætti að ofangreindum aðilum skal gert viðvart skriflega og óskað eftir tilnefningum. Samhliða skal auglýst á heimasíðu Þekkingarnetsins og í staðarmiðlum eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnarsetu. Þetta er gert með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara. Ef tilnefningar til stjórnar berast ekki fyrir aðalfund að þessu undangengnu ber fráfarandi stjórn að tilnefna fulltrúa í stjórn frá þeim aðilum sem tilnefning hefur ekki borist. Stjórn getur falið forstöðumanni að hafa milligöngu um eða frumkvæði að því að leita tilnefninga til aðila sem falla að ofangreindu.
Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs sér formann og varaformann á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Á fundum stjórnar ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum. Falli atkvæði á stjórnarfundum jafnt hefur atkvæði formanns tvöfalt vægi. Formanni stjórnar er skylt að boða fund ef a.m.k. tveir stjórnarmenn krefjast þess. Það sem gerist á fundum stjórnar skal bókað í gerðabók og ber stjórn ábyrgð á því að fundarritun sé framkvæmd.
Stjórn Þekkingarnetsins fer með æðsta vald stofnunarinnar, mótar stefnu og starfstilhögun og vinnur að markmiðum stofnunarinnar skv. 3. grein. Stjórn ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum stofnunarinnar og setur henni reglur. Stjórnarfundir skulu boðaðir með a.m.k. 5 daga fyrirvara. Stjórnarmaður víkur af fundi sé fjallað um málefni er varða hann persónulega. Stjórnin ræður löggiltan endurskoðanda til að yfirfara reikninga stofnunarinnar. Stjórn hefur heimild til að skipa nefndir um sérstök verkefni.
5.gr.
Aðalfund sjálfseignarstofnunarinnar skal halda ár hvert. Formaður stjórnar boðar til aðalfundar með dagskrá með minnst sjö daga fyrirvara og skal hann haldinn fyrir 1. júlí ár hvert. Á aðalfundi skal stjórn leggja fram skýrslu um starfsemi ársins, ársreikning fyrir undangengið fjárhagsár ásamt áætlun um starfsemi komandi árs. Á aðalfundi skal lýsa tilnefningum í stjórn og leggja fram reikninga síðasta árs ásamt ársskýrslu stjórnar.
6.gr.
Stjórnin ræður forstöðumann til starfa og ákvarðar um starf hans og kjör. Forstöðumaður er talsmaður stofnunarinnar, annast daglegan rekstur, fer með stjórn fjármála stofnunarinnar og annast reikningsskil í umboði stjórnar. Forstöðumaður ber ábyrgð gagnvart stjórn. Hann vinnur að framgangi stefnumála stofnunarinnar, öflun verkefna og fjár og því sem stjórnin ákvarðar hverju sinni. Forstöðumaður fer með starfsmannamál en ræður staðgengil í samráði við stjórn. Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt.
7.gr.
Tekjur Þekkingarnets Þingeyinga, auk vaxta af stofnframlagi, eru eftirfarandi: Opinber framlög, tekjur fyrir þjónustu og aðstöðu, framlög aðila samkvæmt samningum, framlög fyrirtækja og samtaka, tekjur af ráðstefnu- og námskeiðahaldi og aðrar sértekjur. Tekjum og eignum Þekkingarnets Þingeyinga skal eingöngu varið í hverjum þeim tilgangi sem samrýmist markmiðum hennar sbr. 3. gr.
8.gr.
Ekki má veðsetja eignir stofnunarinnar án samþykktar stjórnar. Ekki má binda eignir hennar nokkrum veðböndum eða skuldbindingum sem óviðkomandi eru tilgangi stofnunarinnar.
9.gr.
Reikningsár Þekkingarnets Þingeyinga er almanaksárið. Forstöðumaður skal fyrir 1. desember ár hvert leggja rekstraráætlun næsta árs fyrir stjórn til afgreiðslu. Hann skal sjá um að endurskoðaður ársreikningur berist Ríkisendurskoðun með tilskildum hætti eigi síðar en 30. júní ár hvert fyrir næstliðið ár ásamt skýrslu um hvernig fé stofnunarinnar hefur verið ráðstafað á því ári. Um reikningshald fer að öðru leyti eftir lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
10.gr.
Þessi skipulagsskrá kemur í stað skipulagsskrár Þekkingarnets Þingeyinga sem staðfest var 11. mars 2004 sem og skipulagsskrár Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga sem staðfest var 7. janúar 2000 (með breytingu sem staðfest var 29. janúar 2004). Báðar fyrrgreindar skipulagsskrár falla úr gildi við staðfestingu þessarar skipulagsskrár. Skipulagsskrá þessari verður aðeins breytt með samþykki 2/3 hluta stjórnar enda sé fundur löglegur og boðaður með viku fyrirvara og tillaga um slíkt verið kynnt sérstaklega í fundarboði. Þekkingarnet Þingeyinga verður aðeins lagt niður með ákvörðun 2/3 hluta stjórnar. Verði stofnunin lögð niður skal eigum hennar ráðstafað í héraði með tilliti til markmiða hennar.
11.gr.
Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari og breytingar hljóta staðfestingar dómsmálaráðherra. Skipulagsskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsskrá uppfærð með vísan í ákvörðun stjórnar á aðalfundi 2024.
Staðfest með auglýsingu í stjórnartíðindum ágúst 2024