Samstarf

Þekkingarnetið byggir allt á samstarfi og til þess er stofnað sem samstarfsnets um menntaþjónustu og rannsóknir. Stjórn Þekkingarnetsins er 8 manna og samsett af fulltrúum sveitarfélaga, háskóla, framhaldsskóla, rannsóknastofnana og aðilum atvinnulífsins. 

Þekkingarnetið á einnig í starfi sínu í víðtæku samstarfi við fjölmarga aðila og byggir á því að sinna svæðisbundinni þjónustu við samfélag; íbúa og atvinnulíf, á öllu sínu starfssvæði í Þingeyjarsýslum. 

Þekkingarnetið byggir einnig tilvist sína á þátttöku í samstarfi við aðrar sambærilegar stofnanir víða um land, s.s. í gegnum samtök símenntunarmiðstöðva og samtök þekkingarsetra.  Þetta má einnig sjá í uppbyggingu stofnunarinnar sjálfrar þar sem hún rekur starfsstöðvar sínar og þjónustu víða um hérað, en ekki með miðlægri starfsemi frá einum stað.

Erlend samstarfsverkefni

Erlend samstarfsverkefni eru vaxandi hluti starfsemi Þekkingarnetsins og hefur stofnunin tekið þátt í allmörgum slíkum verkefnum. Oftast er um að ræða rannsókna- og/eða þróunarverkefni á fagsviðum Þekkingarnetsins þar sem fjármögnun fer fram í gegnum samkeppnissjóði á evrópskum eða norrænum grunni.

  

NICHE 2

NICHE 2 – Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship. Markmið NICHE 2 er að þróa og veita þjálfun fyrir einstaklinga sem nýta sér óáþreifanlegan menningararf í sínu starfi til að stuðla að sjálfbærum vexti þessarar starfsemi. Markmið verkefnisins er að auka fagmennsku með því að styðja við þá færni sem hefur verið skilgreind í Evrópska hæfnirammanum um sjálfbærni sem og stafræna færni. Þekkingarnetið leiðir verkefnið en í verkefninu eru alls sjö samstarfsaðila frá sex löndum: Króatíu, Frakklandi, Íslandi, Ítalíu, Belgíu og Spáni.

EU NET

Þekkingarnetið er samstarfsaðili í tveggja ára evrópuverkefni sem kallast: ”EUropean NETworking as a method for further training and exchange of ideas in the lifelong learning sector” „Evrópskt NET sem aðferð til frekari þekkingar og til að skiptast á hugmyndum í símenntunargeiranum“ [EU-NET]. Heildarmarkmið EU-NET verkefnisins er að styðja við tengslanet á evrópskum vettvangi sjálfseignastofnana og samtaka sem starfa í símenntunargeiranum. Samstarfsaðilar stefna á að hanna, þróa leiðbeiningar um tækifæri í evrópskum samstarfsverkefnum fyrir stofnanir og samtök sem starfa í símenntunargeiranum. Lokaafurð verður handbók með upplýsingum um hvernig sækja á um samstarfsverkefni og stýra þeim. 

First Network

Þekkingarnetið er aðili að  First Network en það eru alþjóðleg samtök símenntunarmiðstöðva og rannsóknarsetra um allan heim. Markmið samtakana er að styrkja og auka samvinnu samtaka og sjálfseignastofnana sem starfa á sviði fullorðinsfræðslu til að starfa á alþjóðavettvangi, auka nýsköpunarhæfni og getu til að laga sig að breytingum í nútíma heimi.

Erlend samstarfsverkefni 2018-2023

     

Þekkingarnet Þingeyinga vann, ásamt sjö samstarfsaðilum frá sex Evrópulöndum, að Erasmus+ verkefninu SPECIAL (Supporting and Promotion EntreComp through Innovative Advanced Learning), sem var á sviði starfsmenntunar.

Verkefnið beindist að því að efla lífsleikni og „mjúka færni“ hjá ungu fólki utan náms og vinnu (NEET), með það að markmiði að auka þátttöku þeirra í samfélagi og á vinnumarkaði. Þróaðar voru og prófaðar sveigjanlegar þjálfunarleiðir sem sniðnar voru að þörfum markhópsins.

Þekkingarnet Þingeyinga fór með verkefnastjórn og byggði verkefnið meðal annars á reynslu tengdri FabLab Húsavík.

Sjá nánar: https://projectspecial.eu

   

NICHE- Óáþreifanlegur menningararfur í frumkvöðlastarfi

Markmið verkefnisins voru að að styðja við starf frumkvöðla tengdu óáþreifanlegum menningararfi og þróa nýtt fræðsluframboð um efnið. Markhópurinn var núverandi og tilvonandi fagfólk í greininni og var ætlunin að auka samkeppnishæfni og viðhalda vexti hennar.

Verkefnin sem unnin voru í NICHE voru því t.d. að:

Skoða hvað óáþreifanlegur menningararfur felur í sér og hvaða eiginleikar og hæfni þurfa að vera til staðar hjá þeim sem starfa innan geirans. Þetta var athugað með tilliti til Evrópska hæfnirammans.

Þróa námsefni um óáþreifanlegan menningararf sem byggir á nýjum aðferðum. Umfjöllunarefnin voru t.d. stjórnun, fjáröflun og stafræn framsetning.

Búa til kennsluvef sem verður þungamiðjan í miðlun á kennsluefni verkefnisins. Efninu var ætlað að auka við færni og hæfni starfsfólks innan geirans. 

NICHE verkefnið var unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Þetta var tveggja ára verkefni og hófst í nóvember 2020. Þátttakendur í verkefninu voru níu talsins frá sjö löndum Evrópu; Íslandi, Belgíu, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Spáni og Svíþjóð. Sótt var um verkefnið á Íslandi og fór Þekkingarnet Þingeyinga með verkefnastjórn yfir verkefninu. Samstarfsaðili okkar á Íslandi voru Nýheimar Þekkingarsetur á Höfn í Hornafirði. 

Verkefnið hlaut viðurkenningu sem Good Practise Example, sjá meira hér.

   

Stafræn samfélög – Stafræn hæfni og færni samfélaga á landsbyggðinni

Verkefnið heitir Digital Communities –Digital skills and competences of local communities in rural areas. Í daglegu tali gengur verkefnið undir heitinu Stafræn samfélög. Verkefnið var unnið í samstarfi sex aðila sem komu frá fimm Evrópulöndum, þ.e. Búlgaríu, Hollandi, Svíþjóð, Spáni og Íslandi en þátttakendur frá Íslandi voru tveir, Nýheimar þekkingarsetur og Þekkingarnet Þingeyinga. Verkefnið er Erasmus+ verkefni og var styrkt er af samstarfsáætlun Evrópusambandsins. Nýheimar þekkingarsetur sóttu um verkefnið fyrir hönd hópsins og leiddu það.

Verkefnið snérist um að styrkja stafræna færni íbúa í sveitarfélögum í dreifbýli. Áhersla var lögð á eldri borgara í þessu samhengi ásamt sjálfboðaliðum, leiðbeinendum og umönnunaraðilum eldri borgara. Unnið var að því að greina hvað þarf til þess að aldraðir einstaklingar geti nýtt mismunandi opinbera þjónustu á veraldarvefnum og lagað sig þannig betur að hinum stafræna heimi. Markmiðið var að efla sjálfstraust í notkun internetsins sem getur aukið lífsgæði en þjónusta færist í  síauknum mæli á vefinn. Að greiningunni lokinni voru þróaðar leiðbeingar fyrir stafræna þátttöku aldraðra, t.d. myndbönd, út frá raunverulegum dæmum úr lífi aldraðra. Afurðirnar voru kynntar fyrir eldri borgurum og umönnunaraðilum eldri borgara og þeim boðin fræðsla í að nýta efnið til að veita skjólstæðingum sínum kennslu, stuðning og hvata.

http://www.digital-communities.eu

     

DEAL – Símenntun í stafrænni hæfni frumkvöðla

DEAL verkefnið miðaði að því að auka möguleika tilvonandi frumkvöðla og þróa nýjar aðferðir í kennslu og þjálfun, efla frumkvöðlastarf í dreifðum byggðum með því að leggja aukna áherslu á stafræna nálgun. Markhópurinn var fullorðið fólk með litla formlega menntun.

DEAL er tveggja ára verkefni sem hófst í lok árs 2020 og lauk 2022. Þátttakendur í verkefninu voru sjö talsins frá fimm Evrópulöndum (Belgíu, Íslandi, Írland, Ítalía og Spáni). Sótt var um verkefnið á Írlandi og voru Þekkingarnet Þingeyinga samstarfsaðili.

Heimasíða verkefnisins er: https://www.projectdeal.eu

   

SUSTAIN IT – SJÁLFBÆRNI Í FERÐAÞJÓNUSTU- NÝSKÖPUN Í ÞJÁLFUN STARFSFÓLKS
e. SUSTAINABLE TOURISM INNOVATIVE TRAINING

Þekkingarnet Þingeyinga voru verkefnastjórar í þessu Erasmus+ verkefni (2018-2020). Samstarfsaðilar voru Nýheimar á Höfn og stofnanir á Írlandi, Kýpur, Spáni, Ítalíu og Belgíu. 

Verkefnið hlaut viðurkenningu sem Good Practise Example.

Markmið SUSTAIN IT var að auka samkeppnishæfni fyrirtækja í ferðaþjónustu sem vinna í anda sjálfbærar þróunar með því að þróa nýja, hagnýta og framkvæmanlega starfsmenntun fyrir stjórnendur þeirra. SUSTAIN IT starfsmenntunin er annars vegar hefðbundin kennsla og hinsvegar fræðsla sem er aðgengileg á vefsíðunni. Sjá nánar á heimasíðu verkefnisins http://www.sustainit.eu/index.php

SOLOPRENEUR VERKEFNIÐ – AUKIN TÆKIFÆRI TIL SJÁLFSTÆÐS REKSTURS Í DREIFÐUM BYGGÐUM EVRÓPU

  1. SELF-EMPLOYABILITY IN REMOTE REGIONS OF EUROPE 

Markmið SOLOPRENEUR verkefnisins (2018-2020) var að þróa námsefni til að auka starfshæfni einstaklinga í sjálfstæðum rekstri eða frumkvöðlastarfsemi t.d. atvinnuleitanda, þeirra sem vildu breyta um starfsvettvang og þeirra sem eru að leita að nýjum tækifærum. Afurð verkefnisins er námsefni sem er allt aðgengilegt á vefsíðu verkefnisins: http://www.solo-preneur.eu/index.php

SOLOPRENEUR – Self-Employability In Remote Regions Of Europe aimed at developing innovative training and learning solutions to enhance employability of job-seekers, underemployed/temporarily unemployed and those who are seeking better or new opportunities through self-employment. SOLOPRENEUR specific objectives were to support the acquisition of skills and tools to enhance self-employability. This was achieved by developing adequate training solutions, material and on-line tools. 

See further on project’s webpage:  http://www.solo-preneur.eu/index.php