Samningar

Þekkingarnetið er sjálfseignarstofnun sem sinnir hlutverkum í almannaþjónustu af margvíslegu tagi. Stofnunin byggir starfsemi sína m.a. á rekstrarsamningum við ríkið/ráðuneyti þar sem afmörkuð verkefni eru útfærð með samningum, oftast til nokkurra ára.  Þessir samningar mynda kjölfestu í starfsemi stofnunarinnar á móti sjálfsaflafé (sölu þjónustu, námskeiðarekstri, ráðgjafarvinnu, samkeppnissjóðum o.fl.). 

Stefnur

Þekkingarnet Þingeyinga hefur staðfest stefnur sem gilda fyrir alla starfsemi stofnunarinnar. Þessar stefnur er haldið utan um í einu lagi og ná þær yfir endurmenntun, jafnrétti, mannauð, persónuvernd, réttindi þjónustuþega, einelti/áreitni og siðareglur.

Stefnurnar voru uppfærðar síðast og staðfestar á aðalfundi stjórnar ÞÞ 20. júní 2023.