Stefán Pétur er verkefnastjóri Hraðsins miðstöðvar nýsköpunar og Fab Lab Húsavík sem fellur undir nýsköpunarsvið Þekkingarnets Þingeyinga. Stefán sér um daglegan rekstur Hraðsins og Fab Lab Húsavík, tekur á móti einstaklingum, fyrirtækjum og frumkvöðlum, og veitir ráðgjöf í hönnun og nýsköpun. Menntun: B.A. í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands.