Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar í Þingeyjarsýslum og hefur skilgreint hlutverk í þjónustu við fullorðið fólk sem býr á starfssvæðinu og stundar eða hyggur á nám, hvar sem það er statt og hvaða nám sem það stundar. Þannig sinnir Þekkingarnetið nemendum á öllum námsstigum hvort sem verið er að byggja undir almennan grunn, stunda nám í framhaldsskólum eða á háskólastigi.
Þjónustan við fullorðna háskólanema og framhaldsskólanema er fyrst of fremst í formi þess að skapa aðstöðu, stuðning og veita ráðgjöf. Þannig getur námsfólkið fengið að taka prófin sín og setið á fjarfundum og við vinnu sína í námsverum víða um starfssvæðið auk þess að setjast niður af og til með náms- og starfsráðgjafa. Síðast en ekki síst drekka kaffi með starfsfólki Þekkingarnetsins og njóta nálægðar við aðra námsmenn.