Þekkingarnetið hefur umsjón með framkvæmd fjarprófa fyrir nemendur framhalds- og háskóla. Boðið er upp á prófaðstöðu og þjónustu á sex stöðum í Þingeyjarsýslum, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Húsavík, Laugum og í Mývatnssveit.
Hjá okkur fara fram próf allt árið um kring og er umsýslu þeirra sinnt samkvæmt reglum um meðferð og öryggi prófa. Beiðnir vegna prófaþjónustu skal senda á netfangið: hac@hac.is eða hafa beint samband við umsjónarmann fjarprófa, Guðrúnu Ósk Brynjarsdóttur í netfangið gudrun@hac.is eða í síma 464-5100.