Þekkingarnetið býður fjarnemum í háskóla- og framhaldsnámi upp á víðtæka þjónustu og aðstöðu til náms. Stofnunin rekur mönnuð námsver á Húsavík, Þórshöfn og í Mývatnssveit þar sem námsfólk getur fengið sólarhringsaðgang að vinnuaðstöðu sem fullbúin er skrifstofutækjum og -húsgögnum. Á Kópaskeri, Raufarhöfn og Laugum í Reykjadal er aðstaða eftir samkomulagi hverju sinni.
Á öllum þessum stöðum er nemendum boðið upp á aðstöðu til fjarprófahalds, með samþykki þeirra skóla sem við á í hverju tilviki.