Draga tökur stórra kvikmynda og þátta að sér erlenda ferðamenn?

Í júlímánuði stendur yfir rannsóknarvinna í verkefni sem hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, þar sem verið er að leggja viðhorfskönnun fyrir erlenda ferðamenn. Sumarstarfsmaður Þekkingarnetsins, Zakaría Soualem (Zakki) sem stundar nám í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands vinnur að rannsókninni sem snýr að stöðu og þróun ferðaþjónustu á Húsavík og Mývatnssveit, notast verður við sömu spurningar og var gert þegar þessi rannsókn var framkvæmd seinast af Lilju Berglindi til þess að kanna þróunn ferðamála á seinustu 10 árum. Samhliða því munu verða bættar við spurningar sem varpa ljósi á áhrif sviðsmynda kvikmynda og þátta á heimsóknir ferðamanna. Húsavík og Mývatnssveit eru meðal þeirra staða sem hafa verið notaðir sem tökustaðir alþjóðlegra kvikmynda og þátta, t.d. James Bond, Game of Thrones, Eurovision song contest.  Zakki mun á næstunni safna viðmælendum úr hópi erlendra ferðamanna sem notuð verða til rannsóknarinnar.

Mynd 1: Upptökustaðir á Norðausturlandi.

Upptökustöðum hefur fjölgað ört á seinustu 20 árum. Íslenska ríkið hefur á seinustu árum stuðlað að betrumbættu stuðningskerfi kvikmyndagerðar og styðja við sjálfsprotinn verkefni í kvikmyndarmenningu hérlendis, undirbúa streymisveitu, etja að betri kvikmyndaframleiðslu allstaðar á landinu. Efling kvikmyndagerðar á Íslandi mun hafa í för með sér fjölbreyttari stoðum undir atvinnulífið með áherslu á greinar sem byggjast hugviti, sköpun og sjálfbærni. Hún mun líka efla íslenska tungu og sjálfsmynd þjóðarinnar og markmið er að ísland geti boðið upp á samkeppni við önnur lönd í kvikmyndaframleiðslu. 

Mynd: 2, Svæðaskipting Húsavíkur eftir svæðum þar sem könnunin verður framkvæmd.

Spyrill á Húsavík þarf að taka tillit til þess að standa ekki fyrir utan stórar ferðaþjónustur, sem dæmi hvalaskoðun, hvalasafnið o.fl. Til þess að útiloka skekkju við könnun, ómögulegt er hins vegar að útiloka alla skekkju þar sem könnunin fer að mestu fram á bryggjusvæðinu eða nálægt, þar sem flest ferðafólk er á Húsavík svo könnun mun alltaf innihalda smá skekkju. Til þess að hámarka nýtni og fjölbreytileika ferðaðist spyrillinn á milli þessa fjögurra staða með reglulegu millibili á meðan könnun stóð.