Design-Thing – HönnunarÞing í október!

HönnunarÞing er hátíð hönnunar og nýsköpunar sem Hraðið-miðstöð nýsköpunar stendur fyrir. Hátíðin er haldin á Húsavík í októberbyrjun. Áherslan þetta árið er á tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar og tónlistar. Það verða sýningar, fyrirlestrar, tónleikar, námskeið og sitthvað fleira á dagskrá. Á dagskránni verða meðal annars prófessor við Listaháskóla Íslands, rokkarar úr Skálmöld, stjórnarmanneskja frá Bang & Olfusen og tónlistarfólk á landsmælikvarða.

Taktu frá dagana 3.-5. október 2024, það verður skemmtilegt. Við lofum því.

Sjá heimasíðu HönnunarÞings:
https://www.hic.is/designthing